Fótbolti - Jafntefli við Grindavík - KR næst

22.apr.2005  07:54
Sæþór Jóhannesson skoraði fyrir okkur
ÍBV lauk þátttöku í riðlakeppni deildarbikarsins með jafntefli við Grindvíkinga í Fífunni í Kópavogi. Fyrri hálfleikur var arfa slakur af hálfu okkar manna en í þeim seinni voru okkar menn betri gír og hefðu hæglega getað gert út um leikinn. James Robinson brenndi af víti um miðjan hálfleikinn en Sæþór Jóh. skoraði svo eftir að hafa komið inn á.
Með þessu jafntefli tryggðum við okkur 4 sætið í A-riðli og munum leika við sigurvegara B-riðils, lærisveina Magg Gylfa, KR. Sá leikur mun fara fram á KR-gervigrasinu á þriðjudaginn, 26. apríl, kl. 19.00.