Í gærkvöldi fór fram lokahóf 3. flokka karla og kvenna í fótbolta en síðustu leikir kláruðust um helgina. Flokkarnir tóku þátt í Íslandsmóti og bikarkeppni ásamt því að farið var til Svíþjóðar í júlí og tekið þátt í Gothia Cup. KSÍ gerði breytingar á Íslandsmótinu í 3. flokk fyrir tímabilið og lengdist það í báða enda, en mótið hófst um miðjan mars og lauk nú í lok september. Mótinu var skipt upp í 3 lotur, þar sem liðin gátu unnið sig upp um riðil, fallið niður um riðil eða staðið í stað. Bæði lið hófu mótið í C-riðli, strákarnir féllu niður í D-riðil eftir lotu 2 en unnu sig aftur upp í þriðju og síðustu lotunni, en stelpurnar unnu sig upp í B-riðil í lotu 2 og munaði litlu að þær hefðu tryggt sér sæti í A-riðli fyrir næsta tímabil í þriðju og síðustu lotunni.
ÍBV þakkar iðkendum fyrir skemmtilegt fótboltasumar!
Þau sem fengu viðurkenningar:
3. flokkur kvenna
Besti leikmaðurinn: Birna María Unnarsdóttir
Framfarir: Embla Harðardóttir
ÍBV-ari: Rakel Perla Gústafsdóttir og Birna Dís Sigurðardóttir
3. flokkur karla
Besti leikmaðurinn: Birkir Björnsson
Framfarir: Þórður Örn Gunnarsson
ÍBV-ari: Kristján Logi Jónsson