Þrettándagleði ÍBV í dag kl. 19:00

06.jan.2021  10:58

Mynd: Addi í London

Gleðilegan Þrettánda kæru vinir.

Í dag verður Þrettándagleði ÍBV með breyttu sniði í ljós þeirra takmarkana sem gilda í samfélaginu.

Hér eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga:

  • Þeir sem eiga Þrettándafána mega endilega flagga honum í dag, eigum til nokkra á skrifstofu félagsins fyrir þá sem vantar
  • Kveikt verður á kertunum (ÍBV stöfunum) kl. 19:00 á Molda.
  • Jólasveinarnir verða með blys upp á Há og veifa til barnanna og hver veit nema að þeir birtist "live" á Facebook síðu Þrettándans í kvöld.
  • Gaman væri að börnin í bænum myndu kveikja á blysum á sama tíma til að jólasveinarnir sjái þau.
  • Skotið verður upp flugeldum af Hánni, Helgafelli, Eldfelli, Heimakletti og Klifi.
  • Þrettándablaðið er komið út stútfullt af skemmtilegheitum, það er aðeins í rafrænu formi og hægt að skoða það hér
  • Hægt er að hlusta á Þrettándatónlist til að koma sér í gírinn hér.
  • Flugeldasala Björgunarfélagsins er opin í dag kl. 15:00-19:00, 25% afsláttur af öllu og eiga þeir til eitthvað af blysum á sérstöku tilboði 350 kr. stk. 
  • Við hvetjum ykkur til að virða fjöldatakmarkanir og sóttvarnir og vinsamlegast safnist ekki saman í hópum til að fylgjast með.
  • Síðan er tilvalið að fylgjast með Kára Kristjáni vini okkar og strákunum í landsliðinu mæta Portúgal í undankeppni EM 2022 á RÚV kl. 19:30.
  • Eftir leikinn er svo hægt að horfa á Þrettándamyndina, en hægt er að leigja hana hér.

Njótum í garðinum heima og höldum Þrettándakaffi með jólukúlunni okkar!

Góða skemmtun.