Gleðileg jól

25.des.2005  09:57

ÍBV-íþróttafélag óskar félagsmönnum sínum, stuðningsmönnum og öðrum velunurum gleðilegra jóla og friðsællar jólahátíðar.

ÍBV-íþróttafélag þakkar þann mikla stuðning sem félagið hefur notið hjá bæjarbúum á þessu ári, án ykkar væri ekkert félag.

Eftir að við höfum slappað af í 3 daga þurfum við aftur að koma blóðinu á hreyfingu og viljum við minna á tilvalda leið til að koma sér í gírinn en það er RisaFlugeldaBingó ÍBV og Björgunarfélagsins n.k. fimmtudag kl. 20.00 í Týsheimilinu, en þar verða vinningar glæsilegri en nokkru sinni fyrr.