ÍBV og Íslandsbanki semja.

21.mar.2005  16:25
Formaður og framkvæmdastjóri ÍBV undirrituðu í dag þriggja ára samning við Íslandsbanka. Samningurinn tekur á öllu starfi félagsins. Með samningnum er Íslandsbanki einn af stærstu styrktaraðilum ÍBV. Samningurinn hljóðar upp á níu milljónir á samningstímanum. Ingi Sigurðsson og Sigurður Friðriksson undirrituðu samninginn fyrir hönd Íslandsbanka.