- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- Orkan og ÍBV
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
FH26. júlí 2010
FH næst.. algjör lykillleikur, FH ingar komnir á skrið og ætla sér sigur.. tekst þeim það ? Er komið að ögurstundu í þessu móti ? ... en höldum Þjóðhátið... og tökum svo á þessum FH ingum síðar.. ( þeim hrokagikkjum...)..... Það er mikið eftir af þessu móti og menn fá engar viðurkenningar núna... nema klapp á bakið í brekkunni....sjáum til....
jj
FH26. júlí 2010
Næsti leikur er lykilleikur. Náist góð úrslit í þeim leik og þá tel ég jafntefli ekki svo slæmt held ég að okkar menn séu í meirriháttar góðum málum til að fara alla leið. Breiðablik hafa verið að spila vel en ég held að það sé ekki nógu breiður hópur og þeir eru einfaldlega ekki jafn sterkir varnarlega. Stig á móti FH, sigur á móti Haukum og góð úrslit í Kópavogi og þá brosum við breitt :)
Trausti
FH26. júlí 2010
Það er nóg eftir af þessu móti og eru allt lykileikir. Leikurinn á móti FH er jafn mikilvægur og leikurinn á móti Haukum þar á eftir. Það eru 3 stig í boði í báðum leikjum.
Þetta snýst um að taka einn leik í einu og sjá hverju það skilar í lokinn.
Sigurður Einar Einarsson
FH26. júlí 2010
Að sjálfsögðu skipta allir leikir máli og hugarfarið í liðinu virðist vera það öflugt að þeir spila alltaf til sigurs og án ótta sem er gaman að sjá. Heimir er skynsamur þjálfari og tryggir að menn hugsi bara um næsta leik en við aðdáendur megum nú láta hugarflugið fara svolítið með okkur ; )
Trausti
FH29. júlí 2010
Þetta verður eflaust hörkuleikur og erfiður....Nú er að duga eða drepast fyrir FH inga og bæði lið reyndar.. og spurning um innbyrðis viðureignir.. nokkrir 6 stiga leikir í þessu.. vona að ÍBV sýni að þetta sé ekki tilviljun með stöðuna..
Johannes
FH03. ágúst 2010
Sko.. þetta verður erfiður leikur held ég..
jay
FH05. ágúst 2010
Svakalegur leikur í kvöld! 3 stig eru ávísun á gríðarlega sterka stöðu í deildinni. Hins vegar erum við að tala um lið sem er búið að vera á góðri siglingu og með flotta leikmenn. Allir á völlinn og berjumst með liðinu okkar! ÁRFAM ÍBV!!!!!!!!!!!!!!!!
Geir Reynis
FH05. ágúst 2010
Þetta verður hörkuleikur sem má ekki tapast. Það er gaman af því hvað allir sparkspekingar eru uppteknir af því hvað það er mikill meistarabragur á Breiðablik. Þegar þeir vinna er talað um að það sé "meistarabragur" á þeim og allt í þeim dúr. Það er alveg augljóst hverjir þessir spekingar og blaðamenn vilja að vinni deildina. En okkar strákar þurfa nú að sýna þeim hverjir eru bestir og vinna Fimleikafélagið í kvöld.
Hafsteinn Gunnarsson
FH05. ágúst 2010
Skv. tölfræðinni vinnur ÍBV 2:1(1:0) með mörkum Tryggva og Denis, Atli Viðar Björnsson jafnar leikinn.
Líkur á 1 eru 63%, X 23% og 2-ur 14%. Ég verð því rólegur framan af leik, þurfum varla meðalleik til að vinna þetta!
Hjalti Kristjánsson
FH05. ágúst 2010
Haha, við fórum létt með þessar lundaætur í kvöld....Áfram FH !!!
FHingur
FH06. ágúst 2010
Til baka...
hehe mér sýndist nú á myndum frá leiknum að stuðningsmönnum firmafélagsins leiðist ekkert að fá sér að borða. Er "mafían" styrkt af Icelandair cargo þegar þið farið svona út á land? ;)
Þýðir ekkert að gráta þetta, tökum bara stóra liðið í Hafnafirðinu á sunnudaginn og komum okkur á skrið aftur ;)
ÁFRAM ÍBV!!!!
Bigginn













