ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Selfoss22. júní 2010
Verð að segja að ég er ánægður með liðið okkar. Eigum að stefna á sigur í öllum leikjum og gera tilkall eins og hin liðin sem ætla sér að vinna deildinni. Hefur verið áætis stöðugleiki í liðinu hingað til, þetta var óhapp að ná ekki að sigra í Vesturbænum. Nú þýðír ekki að dvelja við það, næst er það Selfoss, og þeir geta alveg verið hættulegir, verðum að vera á tánum á móti þeim. EN við eigum sigra öll lið á Hásteinsvelli og stefna á það..
JJ
Selfoss22. júní 2010
Já ekki spurning.. síðan er líka upphitun fyrir leik í Týsheimilinu kl. 19:00 bjór, pizza og læti..snillda að fá þetta svona á föstudegi.
Jói Jó
Selfoss23. júní 2010
Hér er eitthvað sem þið gætuð líka haft gaman af http://selfoss.org/?p=2463
Selfoss
Selfoss23. júní 2010
Skora á Eyjamenn að lesa þessa grein, alveg frábær lesning. Greinilega skemmtilegur penni þarna á ferð. Það er gaman hvað ÍBV-Selfoss leikirnir eru að verða skemmtilegir, það er gaman að eiga svona góðan "óvin" sem maður heldur svo með í næsta leik... á móti höfuðborgarliðum. T.d hafa leikir handboltaliðana undanfarið verið mjög spennandi og skemmtilegir. En ég vona amk að þetta verði skemmtilegur leikur og að Selfoss standi við það að koma með um 1000 manna her.
KLM
Selfoss23. júní 2010
Ég hvet fólk til að mæta á leikinn. Eins og sést á Selfoss-síðunni þá er Skjálfti sem er held ég án nokkurs vafa lang öflugasti stuðninsmannahópur á Íslandi að mæta til Eyja. Var á KR-Selfoss þar sem þeir tóku miðjuna og rústaði henni og þeir hafa víst sungið alla aðra stuðninshópa í kaf í ár. Selfyssingar mæta dýrvitlausir í þennan leik eftir dapurt gengi á undanförnu. Vonandi að okkar menn komi vel stemdir og einnig stuðninsmenn því ekki veitir af ef að Skjálfti lætur sjá sig. Áfram ÍBV!
Eyjamaður
Selfoss24. júní 2010
Mér langar að fá að vita verður leikurinn beint á netinu eins og hákarlarnir hafa verið að gera í bænum flott framtak. væri gaman að heira þennan leik.
Stuðningsmaður ÍBV
Selfoss24. júní 2010
Vignir Egill hjá Suðurland FM 96,3 (www.963.is) lýsir þessum leik allavega í beinni. Hann er auðvitað nokkuð hliðhollur Selfoss samt í lýsingunum :)
Selfoss
Selfoss24. júní 2010
Verður slegið áhorfendamet á Hásteinsvelli ?
uu
Selfoss25. júní 2010
jáááááá ! ánægður með þennann sigur !!!
Gunnarg
Til baka...