ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
FH vs ÍBV beint 20. maí 2010
Minnum á leikin FH og ÍBV í kvöld kl 19:15 leikurinn verður í beinni útsendingu á www.sportfrettir.is og www.ibvfan.blog.is og á facebook hægt er að adda sér á msn ibvfan@hotmail.com Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Veður er þokkalegt í bænum þessa stundina og er ekki annað hægt en að segja að það sé spenningur fyrir þessum leik enda er eyjamaðurinn Tryggvi Guðmunds að fara að spila við sína gömlu félaga sem hann yfirgaf í fyrra til að spila með eyjamönnum. Leikurinn hefst kl 19:15 en útsending frá Kaplakrika hefst kl 19:00 en það er Sverrir Júll sem sér um að lýsa leiknum í kvöld en stuðningsmenn ÍBV ættu að þekkja hann frá því að hann hefur undanfarin 2 ár verið að lýsa leikjum á netinu fyrir eyjamenn. Gaman verður að sjá hvernig leikurinn þróast en við minnum eyjamenn á að mæta á leikinn og styðja við sína menn.
Hákarlinn
FH vs ÍBV beint 20. maí 2010
Það væri fínt að hafa þetta í lagi einu sinni, aldrei hef ég náð að hlusta á "beina lýsingu" er þetta kannski bara ég?
Guðni Freyr Sigurðsson
FH vs ÍBV beint 20. maí 2010
Sama hér... virkaði ekki ?
jj
FH vs ÍBV beint 20. maí 2010
Ekki virkað í þau skipti sem ég hef prófað...
Smári Jökull
FH vs ÍBV beint 20. maí 2010
Held að þetta sért ekki þú Guðni, heldur þeir sem auglýsa þessar beinar útsendingar en geta svo aldrei staðið við þær. Skemmtilegt framtak en það þarf að hafa þessa hluti á hreinu áður en byrjað er. Og það á ekki að þurfa sækja eitthvað auka forrit til að hlusta á þetta. Lýsingarnar voru fínar í fyrra þegar boðið var upp á þær en þetta er orðið svolítið þreytandi...
Haukur
FH vs ÍBV beint 21. maí 2010
Sælir eyjamenn til hamingju með gærdaginn frábær úrslit. Það er eitt að ekki allir gátu ekki hlustað en það var svakalega stór hópur sem var að hlusta í gær og ástæðan fyrir því að winamp var notaður í gær er sú að rétt fyrir útsendinguna hrundi server hjá hísingaraðila og þessu var reddað á stundinni til þess að ekki þirti að hætta við útsendinguna. Það verður lagað í dag og mun ekki skifta neinu máli með hverju er hlustað á í tölvunni á mánudaginn eins og segir einhverstaðar fall er farar heill :)
Sverrir Júll
Til baka...