ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Eru menn ekkert orðnir spenntir fyrir sumrinu ? 06. maí 2010
jæja hvað er að frétta ? Styttist í Fram leikinn en ekkert líf á spjallinu, er enginn spenningur í mönnum hérna ? finnst eitthvað svo allt of rólegt yfir spjallinu hérna miðað við oft áður. hvað finnst fólki um að okkur sé spáð 10 sæti í deildinni ?
Gunnarg
Eru menn ekkert orðnir spenntir fyrir sumrinu ? 06. maí 2010
Er það ekki bara raunhæft ef tekið er mið af síðasta tímabili og hvernig okkur hefur vegnað, ég tel að sumarið geti orðið strembið ef við byrjum ekki að hala inn stigum strax. Ég er þó mjög sáttur við að selfoss og haukar seu í deildinni, því þeir fara beint niður. Ég yrði sáttur með 7-8 sæti og væri það jákvæð þróun frá síðasta ári, svo á ég mér draum um bikarúrslit og fara þannig bakdyramegin inn í evrópudeildina. Varðandi Fram leikinn, ætla menn að hittast eitthvað fyrir leikinn...
Grétar Þór
Eru menn ekkert orðnir spenntir fyrir sumrinu ? 06. maí 2010
Auðvitað er kominn fiðringur í mann, þetta er jú bara rétt að bresta á. Hef eiginlega enga skoðun á þessum spám sem birtar hafa verið, vil bara sjá liðið í fyrsta leik, sem verður víst í beinni á ST2 Sport. Vona að þetta verði skemmtilegt sumar hjá okkur. ÁFRAM ÍBV
Geir Reynis
Eru menn ekkert orðnir spenntir fyrir sumrinu ? 07. maí 2010
Ég held að þögnin á þessu spjalli segi meira en mörg orð.
Beggi
Eru menn ekkert orðnir spenntir fyrir sumrinu ? 07. maí 2010
Það verður að fjölmenna á fyrsta leikinn, 4 dagar til stefnu! Vonandi gengur okkur betur en vanarlega í fyrsta leik :)
Hjördís
Eru menn ekkert orðnir spenntir fyrir sumrinu ? 08. maí 2010
Ég held að spjallið sé ekki mælikvarðinn á stemminguna kringum liðið. Skilst að herrakvöldið hafi t.d. verið flott um daginn og ég myndi setja meira vægi á það. Við erum svolítið vön því að tala um að annaðhvort fara upp um deild eða hanga í deild. Nú hefur þjálfarinn leyft sér að tala um einhvern meiri metnað og ég held að það bíði allir svolítið eftir því að sjá hvernig liðið fer af stað. Ég hvet bara alla til að styðja við liðið til að auka á líkurnar á að vel fari í sumar. Væri gaman að taka 3 stig í Laugardalnum í fyrsta leik, en fyrsti leikur hefur ekki verið happadrjúgur mörg undanfarin ár. Áfram ÍBV!
Jón Óskar
Til baka...