- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- Orkan og ÍBV
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Strákarnir á Oliva Nova03. apríl 2010
Annar dagurinn er að kvöldi kominn hér á Spáni. Strákarnir hafa æft stíft fyrstu tvo daganna og hvíla nú lúinn bein. Reyndar fóru gömlu mennirnir tveir TG og Berti ásamt Geira bruna í golf strax eftir seinni æfinguna í dag. Skytturnar þrjár ásamt hinum juniorunum tóku fyrsta bíl til Benidorm til að hitta elskurnar sínar, og ekkert bólar á þeim enn.
Í morgun tók Hr. Hallgrímsson daginn snemma, greiddi hárið aftur, setti upp sólgleraugun og fór yfir taktík á morgunfundi. Síðan var haldið á æfingasvæðið sem er 750m. frá æfingasvæðinu.
Fyrri æfing dagsins byrjaði ekki vel því Guðjón Orri fékk skurð á hendina og kom ,,blóð í gegn", alveg ótrúleg uppákoma, en betur fór en á horfðist og er hann hinn hressasti núna.
Eftir þessa tvo daga hafa menn lært ýmislegt. M.a. hafa leikmenn liðsins fengið það á hreint hver er herra 42.
Tveir S-Afrískir strákar æfa með liðinu hér á Spáni og hefur Berti markmaður gefið þeim nöfnin Tímon og Púmba.
Ég skora á tölvunördana í herbergi 2101 að sjóða saman næsta pistil..
Trausti
Strákarnir á Oliva Nova04. apríl 2010
Jæja herbergi 01 ekki að standa sig þannig að ég tek bara upp þráðinn þar sem frá var horfið.
Í dag tókum við daginn snemma og tókum langa morgunæfingu... Frjáls mæting var á seinni æfinguna og gátu því gömlu mennirnir í liðinu nýtt tækifærið og farið í golf. Þessir ungu og fersku tóku þess í stað vel á því.
Athygli vakti að Jói búningajöfur ,,hvíta perlan" vann báðar skotkeppnir dagsins, spurning hvort að heimir sér kominn með kandítat í hópinn.
Einnig vakti athygli að Sjúkraþjálfarinn og Framkvæmdastjórinn sýndu ótrúlega takta í vörninni á morgunæfingunni, ég man bara ekki eftir því að boltinn hafi endað í netinu.
Seinni part dags nýttu menn svo við sundlaugarbakkann, Þjálfararnir ásamt ásamt hvítu perlunni og frkvstj kíktu svo á Valencia vs Osasuna, sá leikur endaði 3-0..
góðum degi lokið á Oliva Nova..
kveðjur heim til Eyja.
Trausti
Strákarnir á Oliva Nova05. apríl 2010
Önnur æfing dagsins var að klárast og strákarnir eru vel þreyttir, enda búið að æfa stíft og sólin búinn að grilla nokkra vel. Það kemur sér því vel að vera með góðan sjúkranuddara í hópnum og hafa aðgang af gufubaði og heitri laug hér á hótelinu. Á morgun spilar liðið æfingaleik við spænskt lið og verður spennandi að sjá hvernig sú rimma fer.
Trausti
Strákarnir á Oliva Nova07. apríl 2010
Vænti pistils frá Tóta.. Hann er búinn að vera að sjóða saman pistil í tvo daga.. hlýtur að vera rosalegur... Annars unnum við spænska liðið 16-0.. Tóti mun væntanlega koma betur að því.
Trausti
Strákarnir á Oliva Nova08. apríl 2010
Til baka...
Í dag var síðasta æfing strákana á Spáni, því sló Heimir þjálfari upp léttri skotkeppni þar sem allir leikmenn liðsins kepptu um að komast á milli skotstöðva. Rauða Ljónið (Yngvi) tók snemma forustuna og hélt henni alveg þar til á síðustu tveimur stöðvunum, þá skutu Anton og Hjálmar sér framfyrir aðra menn í hópnum. Keppnin endaði svo með því að Rauða ljónið sem farið hefur á kostum að undanförnu stóð uppi sem sigurvegari ásamt Hjálmari sem hefur haft það hlutverk að hugsa um boltana og brúsana sökum aldurs.
Byssubræður (Finnur og Ágúst sjúkraþjálfari) fóru svo í lyftingarsalinn og enduðu ferðina á því að láta hótelkokkinn elda fyrir sig 6 egg á mann, til að fylla á próteinbyrgðirnar. Sjálfur TG eða herra 42 sem stóð uppi sem sigurvegari gærdagsins ásamt útlendingunum, þurfit að lúta í minni pokann fyrir Rauða Ljóninu í dag. Framundan er nú heimför hjá drengjunum í kvöld, þeir nýta nú síðustu mínoturnar til að sóla sig.
Trausti













