Fótbolti - Gunnar Heiðar áfram með KFS!

19.nóv.2020  18:55

Gaman er að segja frá því að Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur skrifað undir árs samning sem þjálfari KFS. Frumraun Gunnars gekk æði vel í sumar er hann stýrði KFS upp úr 4. deildinni og var mikil og góð stemning í liðinu. Framundan er tímabil í 3. deild og verður gaman að fylgjast með KFS deild ofar. Knattspyrnuráð ÍBV og stjórn KFS hafa verið afar ánægð með samstarf liðanna og störf Gunnars sem þjálfara. Áfram KFS!