Handbolti - Fulltrúar ÍBV í hæfileikamótun HSÍ og Bláa lónsins

12.feb.2020  15:04

Hæfileikamótun HSÍ og Bláa lónsins fer fram helgina 28.febrúar til 1.mars.

Þar æfa strákar og stúlkur fædd 2006 undir stjórn Halldórs Jóhanns Sigfússonar og Rakelar Daggar Bragadóttur en þar fá leikmenn smjörþefinn af því hvernig yngri landslið HSÍ æfa.

Við í ÍBV eigum fulltrúa, bæði í stúlku- og strákahópnum, sem við eru ótrúlega stolt af.

Fulltrúar ÍBV í þessu verkefni eru:

Í stúlkuhópnum:
Herdís Eiríksdóttir og Júnía Eysteinsdóttir

Í strákahópnum:

Auðunn Sindrason, Birkir Björnsson, Jason Stefánsson

Við óskum krökkunum til hamingju með valið og góðs gengis í þessu verkefni.