Handbolti - Þrjár frá ÍBV í A landsliðshóp

06.mar.2019  00:17

Axel Stefánsson valdi þær Jenný, Ester og Örnu í A landsliðshóp sem heldur til Póllands þann 20. mars og tekur þátt í 4 landa móti í Gdansk

Hér fyrir neðan má sjá leikjaplanið og leikmannahópinn:

Leikjaplan íslenska liðsins:
22. mars kl. 16.15 ÍSLAND – Pólland
23. mars kl. 19.30 ÍSLAND – Angóla
24. mars kl. 17.30 ÍSLAND - Slóvakía
*ATH íslenskir leiktímar

Þessir leikir eru liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir umspilsleikina gegn Spánverjum um mánaðarmótin maí/júní en þar er í húfi laust sæti á HM í Japan næsta vetur.

Axel Stefánsson hefur valið eftirtalda leikmenn í þetta verkefni:
 
Markmenn
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Vendsyssel Håndb.
Guðný Jenný Ásmundsdóttir, ÍBV
Hafdís Renötudóttir, Boden

Vinstra horn
Sigríður Hauksdóttir, HK
Stefanía Theodórsdóttir, Stjarnan

Vinstri skytta
Andrea Jacobsen, Kristianstad
Helena Rut Örvarsdóttir, Dijon
Lovísa Thompson, Valur
Mariam Eradze, Toulon

Miðja
Ester Óskarsdóttir, ÍBV
Eva Björk Davíðsdóttir, Ajax
Karen Knútsdóttir, Fram

Hægri skytta
Birna Berg Haraldsdóttir, Neckarsulm
Thea Imani Sturludóttir, Volda

Hægra horn
Díana Dögg Magnúsdóttir, Valur
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram

Línumenn
Arna Sif Pálsdóttir, ÍBV
Steinunn Björnsdóttir, Fram
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss