Þjóðhátíðarblað 2018

27.júl.2018  08:44

Þjóðhátíðarblað 2018 er komið út og er það Ómar Garðarsson sem ritstýrir því í ár. Blaðið er stútfullt af skemmtilegum viðtölum, myndum ofl. að ógleymdum texta og gítargripum Þjóðhátíðarlagsins í ár "Á sama tíma á sama stað"

Takið vel á móti iðkendum félagsins, sem ganga í hús um helgina og selja blaðið, og tryggið ykkur eintak fyrir aðeins 1.000 kr.

Ef svo óheppilega vill til að þið missið af þeim þá er hægt að nálgast blaðið í Klettinum, Skýlinu, Tvistinum og Vöruval.