Forsölulok - Hvítu tjöldin

24.júl.2018  14:53

Forsala

Forsölu á Þjóðhátíð lýkur á dalurinn.is nk. fimmtudag 26. júlí. Frá og með föstudeginum 27. júlí verður eingöngu hægt að kaupa miða á lokaverði.

 

Hvítu tjöldin 

31. júlí 2018 – Niðursetning á súlum verður á eftir töldum tímasetningum.

Reimslóð, Þórsgata og Týsgata – kl. 17:00

Ástarbraut og Veltusund – kl. 18:00

Skvísusund og Lundaholur – kl. 19:00

Sigurbraut, Sjómannasund og Golfgata - kl. 20:00

Efri byggð og Klettar – kl. 21:00

Þeir sem tóku ekki frá lóð – kl. 21:30

 

1. ágúst 2018

Lokað verður fyrir akandi umferð inn í dal frá innrukkunarhliðinu.

 

2. og 3. ágúst 2018 Búslóðaflutningar verða á eftirfarandi tímum:

2. ágúst 11:30 til 15:00 og 17:30 til 20:00

3. ágúst  9:00 – 11:30

Á öðrum tímum verður Dalurinn lokaður fyrir umferð.

 

Er hægt að fá undanþágu með að fara með bíl inn í dal þegar lokað hefur verið fyrir umferð?

Herjólfsdalur er fyrst og fremst vinnusvæði þessa síðustu daga fyrir hátíð og er verið að minnka aðgengi til að tryggja öryggi sjálfboðaliða félagsins og bílstjóra. Ef fólk vill koma í Dalinn á þessum tímum þá bendum við á bílastæðin við Týsheimilið og fólk getur gengið þaðan inn í Dal.