Yngri flokkar - U-16 ára landsliðið í fótbolta í 3. sæti

10.júl.2018  11:09

Clara Sigurðardóttir spilaði með

Clara Sigurðardóttir tók þátt í Norðurlandamótinu með U-16 landsliðinu í fótbolta sem haldið var í Hamar, Noregi, 2.-8. júlí sl.

 

Stelpurnar unnu tvo góða sigra á móti Þýskalandi og Englandi en töpuðu á móti Svíþjóð í riðlakeppninni sem tryggði þeim leik um 3. sætið í mótinu á móti Hollandi. Sá leikur endaði í markalausu jafntefli og þurfti því að grípa til vítuspyrnukeppni. Clara tók fyrstu spyrnuna og skoraði af öryggi, Ísland vann að lokum 4-3 og tryggði sér 3. sætið.

 

Þess má geta að Clara var valinn maður leiksins í leiknum á móti Englandi en þann leik og leikinn á móti Svíþjóð spilaði hún sem fyrirliði.

 

ÍBV óskar Clöru innilega til hamingju með árangurinn.