Handbolti - 6 frá ÍBV í landsliðshópum hjá HSÍ

03.apr.2018  12:21

Bjarni Fritzson og Heimir Ríkharðsson, landsliðsþjálfarar U-20 og U-18 karla í handknattleik hafa valið hópa sem koma saman til æfinga í Reykjavík helgina 6.-8. apríl nk.

ÍBV á 6 fulltrúa í þessum hópum, það eru þeir Andri Ísak Sigfússon, Ágúst Emil Grétarsson, Daníel Griffin, Elliði Snær Viðarsson og Friðrik Hólm Jónsson í U-20 og Ívar Logi Styrmisson í U-18.

Elliði Snær mun ekki ná að taka þátt í þessum æfingum þar sem hann hefur verið kallaður inn í B-landsliðið sem er á leiðinni til Hollands á æfingamót. Þar munu þeir spila á móti landsliðum Hollands og Japan.

ÍBV óskar þessum ungu og efnilegu peyjum innilega til hamingju með valið.