Þrjár ungar skrifa undir samninga

05.mar.2018  08:28

Þrjár ungar knattspyrnukonur skrifuðu um helgina undir samning við ÍBV.  Birgitta Sól Vilbergsdóttir, Telma Aðalsteinsdóttir og Helena Hekla Hlynsdóttir skrifuðu allar undir samning og eru spenntar fyrir komandi knattspyrnusumri með ÍBV.
Telma er uppalin hjá félaginu og hefur nú þegar leikið með meistaraflokki félagsins.
Birgitta Sól kemur frá Ólafsvík en þar lék hún þrátt fyrir ungan aldur 13 leiki með mfl. og gerði í þeim 2 mörk.
Helena Hekla kemur af Selfossi en Helena Hekla er Vestmannaeyjingur dóttir Önnu Láru Guðjóns.  Hekla er á yngra ári í 3.flokki og þykir mjög efnilegur leikmaður. 

Samningurinn var undirritaður á Veitingastaðnum 900 Grillhús sem styður dyggilega við bakið á knattspyrnu kvenna.

ÍBV bíður stúlkurnar innilega velkomnar til félagsins og bindur miklar vonir við þessar ungu og efnilegu stúlkur í framtíðinni.

Áfram ÍBV