Tveir frá ÍBV í U-17 hjá HSÍ

22.maí.2017  09:21

Heimir Ríkarðsson landsliðsþjálfari Íslands í handbolta  hefur valið æfingahóp fyrir u-17 ára landslið karla en liðið æfir 24. - 26. maí.
Liðið tekur þátt í tveimur mótum í sumar, European Open í Svíþjóð í byrjun júlí og Ólympíuhátið Evrópuæskunnar í lok júlí.

Heimir valdi tvo leikmenn ÍBV í hópinn en það eru þeir Ívar Logi Styrmisson og Páll Eiríksson. 

ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur