Tveir frá ÍBV í U-21 hjá HSÍ

19.maí.2017  11:37

Sigursteinn Arndal og Ólafur Stefánsson þjálfarar U-21 landsliðs Íslands í handbolta hafa valið 23 leikmenn til undirbúnings fyrir HM u-21 árs liða sem fer fram í Alsír og hefst um miðjan júlí.
Liðið fer til Frakklands í byrjun júlí til frekari undirbúnings og spila auk þess vináttulandsleiki.

Þeir félagar völdu tvo leikmenn ÍBV í hópinn en það eru þeir Dagur Arnarsson og Elliði Snær Viðarsson.  Báðir hafa látið mikið af sér kveða miðað við ungan aldur og eru því vel að þessu vali komnir.

ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.