Clara í U-17 hjá KSÍ

07.feb.2017  10:35

Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari U-17 ára landsliðsins í knattspyrnu valdi í dag Clöru Sigurðardóttur í lokahóp liðsins til þátttöku í UEFA Development Tournament U17 kvenna sem fram fer í Edinborg, Skotlandi, 19.-25.febrúar 2017.  Ísland leikur þar þrjá leiki.

Clara sem er mjög efnileg hefur heldur betur látið að sér kveða með meistaraflokki nú í vetur og því vel að þessu komin.

ÍBV óskar Clöru innilega til hamingju með þennan árangur