Kári valdi tvær frá ÍBV í U-19 hjá HSÍ

26.jan.2017  10:38

Kári Garðarsson landsliðsþjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í handbolta valdi í dag 16 leikmenn til að leika fyrir Íslands hönd í undankeppni EM.  Kári valdi tvo leikmenn frá ÍBV, þær Söndru Erlingsdóttur og Þóru Guðnýju Arnardóttur.  Riðill Íslands verður leikin á Spáni dagana 17-19.mars.  Íslands leikur í riðli með heimstúlkum, Rúmeníu og Litháen.  Tvö lið fara áfram í lokakeppnina og eru möguleikar Íslands taldir miklir.

ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur