Yfirþjálfari í knattspyrnu

13.jan.2017  08:53

Ian Jeffs

Í byrjun árs var gengið frá samningi við Ian Jeffs varðandi yfirþjálfun í knattspyrnu hjá yngri flokkum félagsins. Ian hefur þegar hafið störf. Félagið bindur miklar vonir við að starfskraftar hans og reynsla muni nýtast félaginu vel.

Að auki mun Ian halda áfram að þjálfa meistaraflokk kvenna hjá félaginu sem og að stýra akademíu félagsins.

Ian er íþróttafræðingur frá HR og hefur lokið UEFA A. Hann hefur verið leikmaður í úrvalsdeild á Íslandi frá 2003 en hefur einnig spilað í Englandi og Svíþjóð. Ian hefur þjálfað í yngri flokkum ÍBV frá 2011 og stýrt liði meistaraflokks kvenna frá 2015.

Ian er í sambúð með Sigríði Ásu Friðriksdóttur og eiga þau tvo syni.