Þrjár frá ÍBV á U-16 hjá KSÍ

09.jan.2017  13:27

Dean Martin nýráðinn landsliðsþjálfari Íslands U-16 ára kvenna í knattspyrnu valdi í dag þrjá leikmenn ÍBV í 26 manna úrtakshóp sem mun æfa helgina 20-22.janúar.  Dean valdi þær Hörpu Valey Gylfadóttur, Clöru Sigurðardóttur og Lindu Björk Brynjarsdóttur í hópinn. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll.

ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur