ÍBV íþróttafélag 20 ára í dag 30. desember

30.des.2016  14:27

Í dag höldum við upp á 20 ára afmæli ÍBV íþróttafélags.  

Í tilefni dagsins munu leikmenn meistaraflokka í fótbolta og handbolta verða með knattþrautir. Fjörið byrjar í íþróttahúsinu kl. 13.30 og færist síðan yfir í Eimskipshöllina kl. 14.30. Kl. 16:00 verður síðan jólaball í Týsheimilinu þar sem nokkrir leikmenn meistaraflokkana munu mæta og árita veggspjöld sem iðkendur fá á ballinu. Að endingu verður boðið upp á afmælisköku og myndasýning í Týsheimilinu kl. 17:00. Við bjóðum alla velkomna á þessa viðburði dagsins.