Devon Már Griffin valinn til æfinga með U-21 hjá KSÍ

28.des.2016  08:53

Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari U-21 landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi í dag Devon Má Griffin til æfinga með liðinu sem kemur saman í byrjun janúar.  Devon Már lék mjög vel þegar hann fékk sín tækifæri síðasta sumar með meistaraflokki og því vel að þessu vali kominn.

ÍBV óskar Devon Má innilega til hamingju með þennan árangur