Sísí Lára valin í æfingahóp A-landsliðsins

22.des.2016  08:41

Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu valdi í dag Sigríði Láru Garðarsdóttur í æfingahóp A-landsliðsins sem undirbýr sig af kappi fyrir Algarve mótið í Portúgal en þar mætast allar sterkustu knattspyrnuþjóðir heims.  Sísís Lára hefur verið viðloðandi landsliðið og staðið sig mjög vel á æfingum sem varð til þess að Freyr valdi hana.  Æfingarnar fara fram í Reykjavík fimmtudaginn 19.janúar en daginn eftir verður flogið til Akureyrar þar sem hópurinn verður saman í þrjá daga.

ÍBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur