Dagur í lokahóp U-21 hjá ÍBV

16.des.2016  08:43

Sigurteinn Arndal og Ólafur stefánsson þjálfarar U-21 í handbolta völdu í gær Dag Arnarsson í lokahóp sem tekur þátt í undankeppni EM sem fram fer í Serbíu í janúar.  Hópurinn kemur saman dagana 29.des - 5.janúar en þá verður haldið til Serbíu.

ÍBV óskar Degi innilega til hamingju með þennan árangur