Þrjár frá ÍBV á U-16 hjá KSÍ

05.des.2016  08:51

Úlfar Hinriksson landsliðsþjálfari U-16 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu hefur valið þrjá leikmenn ÍBV í 32 manna úrtakshóp sem æfir saman helgina 9-11.desember.  Úlfar valdi þær Hörpu Valey Gylfadóttur, Clöru Sigurðardóttur og Lindu Björk Brynjarsdóttur í hópinn.

ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.