Sísí Lára skrifar undir nýjan samning við ÍBV

12.okt.2016  11:25

Sigríður Lára Garðarsdóttir undirritaði í gær nýjan samning við ÍBV.  Sísí Lára sem heldur til Danmerkur í nám á næstunni mun leika með ÍBV á næsta leiktímabili þrátt fyrir að flest önnur félög úrvalsdeildarinnar hafi sóst eftir hennar kröftum.

Sísí Lára átti skínandi sumar fyrir ÍBV og gerði 5 mörk og var þrumufleygur hennar af 30 metra færi gegn KR á Hásteinsvelli eitt af mörkum sumarsins.

ÍBV fagnar þessum samningi enda alltaf gott að vita þegar leikmenn halda tryggð við sitt uppeldisfélag.

Í leiðinni var skrifað undir samstarfssamning við Einsa Kalda en Einar Björn og Bryndís hafa staðið þétt við bakið á knattspyrnu kvenna.

ÁFRAM ÍBV