Nýtt knattspyrnuráð

07.okt.2016  16:58

Aðalstjórn ÍBV skipaði  í dag nýtt knattspyrnuráð fyrir meistaraflokk karla. Óskar Örn Ólafsson tilkynnti aðalstjórn í ágúst sl. að hann myndi ekki gefa kost á sér aftur til formennsku að loknu yfirstandandi keppnistímabili. Í kjölfarið skipaði aðalstjórn Pál Þ. Hjarðar til formennsku í ráðinu og lagði hann í dag fram tillögu um skipun ráðsins að öðru leyti.  Þeir eru:

Magnús Elíasson

Magnús Steindórsson

Haraldur Pálsson

Haraldur Bergvinsson

Kristján Georgsson

Auk þess munu fleiri  koma að starfinu til einstakra verka.

Að gefnu tilefni vill aðalstjórn árétta að enginn hefur verið rekinn úr knattspyrnuráði. Aðalstjórn uppfyllti þá skyldu sína að skipa ráðinu nýjan formann í stað Óskars Arnar  og nýr formaður gerði síðan tillögu um skipan ráðsins að öðru leyti - nú þegar starfstími fyrra ráðs rann út.

Aðalstjórn ÍBV býður nýtt fólk velkomið til starfa og þakkar þeim sem hætta fyrir fórnfúst og óeigingjarnt starf í þágu félagsins.