Handbolti - Handboltaveisla, laugardaginn 10. september

08.sep.2016  20:45

Laugardaginn 10. september verður sannkölluð handboltaveisla í Íþrottamiðstöðinni í Vestmannaeyjum þar sem bæði karla og kvenna lið ÍBV hefja tímabilið með því að spila við Íslandsmeistarana frá síðasta tímabili. Stelpurnar spila kl. 13.30 á móti Gróttu og strákarnir kl. 16.00 á móti Haukum.
Verð á hvorn leik 1500 kr, en 2000 kr fyrir báða leikina. 
Það verða seldar pizzur frá 900 Grillhús á milli leikja.
Ekki missa af þessu.
Fyrir þá sem ekki komast, þá verða leikirnir sýndir á ÍBV-TV
http://www.ibvsport.is/page/ibvtv

Áram ÍBV