Starfsmaður á skrifstofu félagsins

03.sep.2016  10:49

ÍBV íþróttafélag auglýsir eftir stafsmanni í 50%  starf á skrifstofu félagsins.

Starfsmaður mun halda utan um ákveðin verkefni vegna aukinna umsvifa félagsins. Meðal helstu verkefna má nefna:

  •         Halda utan um æfingagjöldin og Nóra kerfið
  •         Tm mótið
  •         Umsýsla vegna akademíu félagsins
  •         Vinna í reglum félagsins
  •         Undirbúa lokahóf

Hæfniskröfur:  Færni í mannlegum samskiptum og gott vald á íslenskri tungu nauðsynleg. Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg. Einnig er mikilvægt að starfsmaður hafi yfir að ráða góðum skipulagshæfileikum og að hann geti byrjað að vinna sem fyrst.

  • Nánari upplýsingar um starfið veitir Dóra Björk Gunnasdóttir, framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags, í síma   8918011 eða í gegnum tölvupóstfang: dora@ibv.is
  • Senda skal umsóknir á netfangið dora@ibv.is merkt starfsmaður á skrifstofu. Umsóknarfrestur er til og með 10. sepetember 2016