Kominn heim

08.júl.2016  08:16

ÍBV tók á móti sínum dáðasta syni á fimmtudaginn er hann mætti í hið vikulega kaffi félagsmanna ÍBV.  Þar sem við vitum að Heimir er ekki mikið fyrir umstang var honum afhentur fallegur kertastjaki sem Berglind í Bk gler sá um að útbúa með kærri kveðju frá ÍBV.

Ferð Heimis sem þjálfari er ævintýri líkust en Heimir hóf sinn þjálfaraferil sem aðstoðarþjálfari hjá Gregor hinum Pólska sem kom hingað til að þjálfa fyrir knattspyrnufélagið Tý.  Heimir þjálfaði yngri flokka Týs í nokkur ár og síðar hjá ÍBV áður en hann tók við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá félaginu.  Eftir það tók Heimir við þjálfun meistaraflokks karla í nokkur ár.  Á þessari leið kláraði Heimir sitt þjálfaranám en hann var í fyrsta hópnum frá Íslandi sem fór í gegnum UEFA-A þjálfaragráðuna og lauk Heimir henni með hæstu einkunn. Í kjölfarið var Heimi boðið að taka UEFA pro gráðuna sem hann gerði og lauk þar námi með glæsibrag.  Heimi var boðið að taka að sér að vera aðstoðarþjálfari Lars Lagerbeck hjá Íslenska landsliðsins sem hann þáði.  Árangurinn lét ekki á sér standa og tveimur árum síðar var Heimir orðinn aðalþjálfari ásamt Lars.  Eftir að þáttöku Íslands á EM 2016 í Frakklandi lauk verður Heimir aðalþjálfari Íslenska landsliðsins í knattspyrnu næstu tvö árin.

 

Gaman er að segja frá því að fyrir 10 árum þá var Heimir ásamt Írisi að þjálfa 6. flokk ÍBV og var árangur liðsins þessi á Shellmótinu það árið: A liðið tapaði úrslitaleik, B liðið endaði í fyrsta sæti og C liðið tapaði úrslitaleik. Um haustið urðu peyjarnir í A liðinu svo Íslanadsmeistara.

 

Að öllum ólöstuðum þá teljum við það mikinn heiður fyrir ÍBV að Heimir sé nefndur dáðasti sonur ÍBV.

ÍBV óskar Heimi og hans fjölskyldu innilega til hamingju með þennan glæsilegan árangur