Dagur í lokahóp U-20 hjá HSÍ

27.jún.2016  10:08

Ólafur Stefánsson og Sigursteinn Arndal hafa valið þá 16 leikmenn sem spila á 4 liða móti í
Sviss 24.-26. júní.  Þeir félagar völdu Dag Arnarsson frá ÍBV enda Dagur gríðarlega efnilegur leikmaður.
Á mótinu spila íslensku strákarnir á móti Þjóðverjum, Spánverjum og Svisslendingum.

ÍBV óskar Degi innilega til hamingju með þennan árangur