Yfirlýsing frá ÍBV og Orkumótsnefnd

26.jún.2016  22:29

Orkumótið 2016

Á föstudaginn var átti hvert félag að tilnefna leikmann í landslið/pressulið fyrir leikina sem spilaðir voru þá um kvöldið. Eitt félagið tilnefndi stúlku í liðið og fékk viðkomandi félag upplýsingar um að það gengi ekki þar sem  Orkumótið væri drengjamót.

Undanfarin ár hafa verið gerðar undantekningar fyrir lítil félög á landsbyggðinni, þar sem ekki er stúlknalið í þeirra flokki, og stúlkum leyfð þátttaka í þeim liðum. Vonumst við til að geta viðhaldið því fyrirkomulagi því það er vilji ÍBV að sem flestir krakkar fái að upplifa það að spila á stórmóti sem þessu.

Fyrir rétt rúmum tveimur vikum var TM mótinu í Eyjum en á því móti er einnig spilaður leikur á milli landsliðs og pressuliðs. Þessi iðkandi mun vonandi fá tækifæri til að spila slíkan leik þegar og ef hún mætir á TM mótið í Eyjum í 5. flokki stúlkna.

Ef knattspyrnuhreyfingin telur það íþróttinni og iðkendum til framdráttar að hætta að spila í kynjaskiptum liðum á mótum á borð við Orkumót og TM mót þá mun ÍBV íþróttafélag taka fyrirkomulag þessara móta til endurskoðunar. Ef ekki þá munum við halda áfram að hafa þessi mót okkar kynjaskipt í samræmi við stefnu KSÍ - í þeirri von að þannig séum við að mæta þörfum bæði drengja og stúlkna.

Björgvin Eyjólfsson f.h. Orkumótsnefndar og
Dóra Björk framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags