Handbolti - ÍBV framlengir við þrjá unga og efnilega leikmenn

12.maí.2016  22:20

ÍBV framlengdi í dag samninga við þrjá unga leikmenn. Það eru þær Sirrý Rúnarsdóttir, Ásta Björt Júlíusdóttir og Þóra Guðný Arnarsdóttir. Allar spila þær bæði með ungligaliði og með meistaraflokki, auk þess voru þær allar í landsliðsæfingahópi í vetur. Þær eru án efa framtíðarleikmenn hjá félaginu og erum við stolt af því að tilkynna að þær hafa framlengt samninga sína við félagið til tveggja ára.

Áfram ÍBV, framtíðin er björt.