Úrslitaleikurinn fer fram á Hásteinsvelli á fimmtudag í boði Vinnslustöðvarinnar

25.apr.2016  15:08

Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna í knattspyrnu fer fram á Hásteinsvelli n.k fimmtudag kl. 18.00 og verður frítt á leikinn í boði Vinnslustöðvarinnar.
Þá tekur ÍBV á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks og má búast við hörkuleik.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 2004 sem ÍBV kemst í úrslitaleik í þessari keppni en í þá daga hét keppnin Deildarbikarkeppni KSÍ.   Nú þurfa stúlkurnar á öllum stuðningi að halda á fimmtudag til að leggja Íslandsmeistarana af velli og því ljóst að þinn stuðningur skiptir öllu máli.  Mætum á Hásteinsvöll í hvítu og styðjum ÍBV til sigurs.

ÁFRAM ÍBV