Handbolti - 3. flokkur kvenna deildarmeistarar í 2. deild

04.apr.2016  11:15

3. flokkur kvenna lék 2 leiki hér heima í Eyjum um helgina, þær sigruðu báða leikina og tryggðu sér efsta sæti 2. deildar þrátt fyrir að tvær umferðir séu eftir. Þær mættu Víkingum 2 á laugardag og gjörsigruðu þann leik 43-28. Á sunnudaginn tóku þær síðan á móti Fram 2 og sigruðu þann leik einnig 29-26 (13-17). Stelpurnar leika undir stjórn Hrafnhildar Óskar Skúladóttur. Til hamingju stelpur með árangurinn.