Handbolti - Dagur Arnarsson og Hákon Daði í lokahóp U-20 í handbolta

22.mar.2016  13:25

Þjálfarar U-20 ára landsliðs Íslands í handbolta Ólafur Stefánsson og Sigursteinn Arndal hafa valið 16 manna hóp sem heldur til Pólands og leikur 3 landsleiki gegn Búlgaríu Ítalíu og Póllandi, Þeir Dagur Arnarsson og Hákon Daði Styrmisson (á láni hjá Haukum) eru meðal þeirra 16 sem valdir voru, leikirnir fara fram 8. til 10. apríl. Tvö efstu sætin úr þessum riðli veita þátttökurétt í lokamóti EM sem fram fer í Danmörku í sumar, við óskum strákunum til hamingju með áfangann og óskum þeim velfarnaðar.