Handbolti - Agnar Smári og Theódór framlengja við ÍBV

02.mar.2016  23:27

Handknattleiksdeild ÍBV framlengdi í dag samninga við tvo lykil leikmenn, þá Theódór Sigurbjörnsson og Agnar Smára Jónsson.

Það er mikill hvalreki fyrir félagið að báðir þessir leikmenn ætli að spila með liðinu á næsta tímabili.

Theódór hefur verið með betri leikmönnum liðsins undanfarin ár og var nýlega valinn íþróttamaður ársins í Vestmannaeyjum.

Agnar Smári kom til baka til ÍBV frá Mors Thy í lok janúar eftir hálft ár í danmörku. Þar á undan spilaði hann tvö tímabil með ÍBV og varð Íslands og bikarmeistari með liðinu.