Handbolti - Bikarleikur, ÍBV - HK

26.jan.2016  12:17

Þá er loksins komið að fyrsta leik ársins hjá meistaraflokk karla. Mánudaginn 1. febrúar kl. 18.00 fáum við lið HK í heimsókn í 16 liða úrslitum Coca Cola bikarsins. Það er mikill hugur í strákunum að endurtaka leikinn frá því í fyrra og fara alla leið í bikarnum. Stuðningur ykkar skiptir miklu máli fyrir strákana og hvetjum við því alla til að mæta á pallana og láta til sín taka.

Árfam ÍBV. Höldum bikarnum heima.