Handbolti - ÍBV fær Fram í heimsókn

05.jan.2016  23:13

Olísdeildin byrjar aftur sunnudaginn 10. janúar kl. 13.30 hjá ÍBV stelpunum, en þá koma Framarar í heimsókn. Fram er verðurgur andstæðingur og eru nýkrýndar deildarbikarmeistarar þar sem þær lögðu fyrst Gróttu og svo Val í úrslitaleiknum.  Okkar stelpur eru staðráðnar í að taka tvö stig úr þessum leik og óska eftir góðum stuðningi ykkar.

Áfram ÍBV. Alltaf, alstaðar