Handbolti - Stjörnuleikur 2015

11.des.2015  23:46
Þann 13.desember nk. Klukkan 16:00 munum við standa fyrir árlegum góðgerðarleik í handbolta. Þar keppa handboltastjörnurnar svokallaðar.
Þetta hefur vaxið ár frá ári og komu um 250 áhorfendur á leikinn í fyrra sem var frábær skemmtun.
 
Handboltalið ÍBV gefur alla sína vinnu við uppsetningu og undirbúning fyrir þennan leik.
 
Í ár mun ágóði af leiknum renna í styrkarsjóð fyrir Sóleyju Ólafsdóttur sem glímir við erfið veikindi.
 
Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir leikinn: 582-14-401064 kt. 251164-3719