Handbolti - Bikarleikur, ÍBV B - Valur

03.des.2015  19:42

Þá er komið að því! Stórleikur ÍBV-B og Vals í 16.liða úrslitum Coca-cola bikarsins

Leikurinn við Valsmenn er í gamla sal Íþróttamiðstöðvarinnar kl. 14 á laugardag. Hægt er að nálgast miða á Hárstofu Viktors við Vestmannabraut og hjá leikmönnum B-liðsins. Miðaverð 1.500 kr.

Liðsmenn B-liðsins óska eftir stuðningi áhorfenda. Það jafnast fátt á við það að sjá svona fallega karlmenn spila handknattleik. Takmarkað af miðum í boði!

Áfram ÍBV, alltaf, allsstaðar!!!