Handbolti - Strákarnir í handboltanum í evrópukeppni

26.nóv.2015  11:45

ÍBV spilar tvo leiki á móti S.L. Benfica í evrópukeppninni í handbolta um helgina. Fyrri leikurinn er á föstudaginn kl. 20.00 og sá seinni á laugardaginn kl 19.30. Strákarnir æfðu í höllinni í morgun og eru allar aðstæður til fyrirmyndar. Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með leikjunum þá er rétt að benda á að báðir leikirnir verða í beinni textalýsingu á visir.is. Einnig ætla strákarnir að vera með ÍBV-handbolti snapchatið um helgina.