Handbolti - Teddi nýliði í landsliðinu

21.okt.2015  09:26

Frábær byrjun hjá Tedda í leikjum vetrarins kemur honum í landsliðið, Kári Kristján einnig á sínum stað.

Teddi er annar af tveimur nýliðum í 20 manna hópi sem að æfir saman og heldur síðan til Noregs þar sem landsliðið tekur þátt í móti og leikur gegn Noregi, Frakklandi og Danmörku.Kári Kristján er svo á sínum stað í hópnum líka. Til hamingju með þetta strákar