Handbolti - Þrjár frá ÍBV í afrekshóp HSÍ

29.maí.2015  08:36

Valinn hefur verið fyrsti Afrekshópur kvenna á vegum HSÍ. Hópurinn verður við æfingar næstu þrjár vikur undir stjórn landsliðsþjálfara HSÍ.  ÍBV á þrjá fulltrúa í hópnum sem eru Díana Dögg Magnúsdóttir, Drífa Þorvaldsdóttir og Erla Rós Sigmarsdóttir.

ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.