Yngri flokkar - Díana Helga æfði með U-19 hjá KSÍ.

10.mar.2015  16:36
Um síðustu helgi æfði Díana Helga Guðjónsdóttir með landsliði Íslands U-19 ára.
Æfingarnar fóru fram í Kórnum og í Egilshöll þar sem æft var tvisvar á laugardeginum og svo einu sinni á sunnudeginum.
Þjálfari liðsins er Úlfar Hinriksson.
ÍBV óskar Díönu Helgu innilega til hamingju með þennan árangur.