Fótbolti - Sabrína í U-19.

04.sep.2014  11:36
Sabrína Lind Adolfsdóttir var í gær valin í lokahóp U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu sem er á leið til Litháen að taka þátt í undankeppni EM 2015.
18 leikmenn voru valdir en áður hafði Sabrína æft í 35 manna úrtakshóp.
Sabrína Lind hefur leikið mjög vel með ÍBV í sumar og er því vel að þessu vali komin.
ÍBV óskar Sabrínu innilega til hamingju með þennan árangur.